|
|
05.05.2006 15:39:23 / mogli
»
04.05.2006 12:00:20 / mogli
Hæbb! ..
ég hef ekkert verið að blogga:/ er náttúrulega í
samræmduprófunum þannig að það er skiljanlegt, en já .. fyrir
prófin plantaði ég mér alltaf bara útí nýja hjólhýsinu og
lærði & lærði og það var bara heví næs.. algjör friður og
engir bræður með læti í kringum mann. Síðan var
íslenskuprófið í gær, og mér gekk bara vel held ég síðan
fór ég í sund, eða aðallega gufu.. rosalega
gott=)
og
ég var að koma núna úr enskunni og mér gekk ennþá betur í henni, en
á morgun er danska .. og ég get ekki sagt að þar sé mín sterkasta
hlið svo að ég ætla að læra soldið í dag.. við ágúst ætlum að
skella okkur á bókasafið og leigja danska mynd.. haha það verður
fróðlegt, en já ætlaði bara svona að segja hvað ég væri að bardúsa
þessa dagana.. vi ses;*
»
24.04.2006 23:47:05 / mogli
»
19.04.2006 00:41:28 / mogli
»
15.04.2006 14:55:45 / mogli
Jæja þessi vika var fin eftir allt saman,
á fimmtud fór ég með mömmu í smáralind og græddi á þeirri
ferð um kvöldið hittumst við stelpurnar heima hjá Hildi,
fórum eitthvað í hvammasjoppu og löbbuðum síðan heim til
Rakelar niðrá velli og þar var horft á houswifes þarna og
spjallað vel og lengi, síðan sótti pabbi hennar ástu okkar

Í gær svaf ég langt fram á dag og slappaði af bara hérna heima ..
Síðan komu Flowerpower gellur til mín og Sólveig líka og við héldum
smá stelputeiti =) það var mjög gaman sko, takk fyrir komuna ;*(L)
og já eftir það þá fórum við út .. og já hemm og fór allt í klúður
og við enduðum allar á sitthvorum staðnum eftir allt bullið og ég
er með svo mikinn samviskubit og hef áhyggjur af ykkur stelpur.. ég
þarf að tala við ykkur:/. Ég segi bara fyrirgefðu við alla sem ég
var leiðinleg við og ég meinti ekkert & líka takk fyrir
hjálpina. Annars þá fer ég með mömmu í sumarbústað til ömmu
seinnipartinn í dag og kem aftur á morgun. Hlakka soldið til að fá
páskaeggin og það =) verð með símann þannig að ekki hika við að
hringja afþví að ég veit að mér á eftir að leiðast soldið -
8972890.
Gleðilega Páska
»
12.04.2006 15:08:28 / mogli
Sælinú ..
mér finnst þetta páskafrí ekki alveg að gera sig hingað til, ég
reyni að einbeita mér við að læra með msnið við hliðiná mér &
það er ekki alveg að virka.. ég ét og ét og mér leiðist bara! Ég
sem var búin að skipuleggja mig eitthvað brjálað bara; vakna, bað,
læra, læra, læra, út .. einhvernveginn er ekkert að gerast svo að
maður getur ekkert farið neitt :/ og ég get ekki lært .. svo að
dagarnir eru svona: vakna, bað ... æji ég ætla að reyna að bæta
þetta á næstu dögum, nóg um það.
Ég er að reyna að fá Rakel til að halda afmælið sitt þarnæstu
helgi, og ég ætla að ná því. Ekkert múður með það skal ég segja þér
Rakel mín !
En ég ætla að skemmta mér næstu helgi takk fyrir, ætla að hafa það
bestu helgi ever eftir þessa ógeðslega leiðinlegu viku!
litla frekjan við hliðiná mér þarf
að fara í tölvuna, blogga seinna ;*
»
09.04.2006 18:00:56 / mogli
Þessi helgi var bara rosalega skemmtileg í alla staði ..
Á föstudaginn var ég ein heima, pantaði pizzu og fór niðrí bæ
með Ágústi, Hallbergi og Ingibjörgu nýju kærustunni hans. Við
fórum á kaffibrennsluna, þaðan á gaukinn & enduðum á
sirkus =) síðan var bara farið heim í bólið. Á laugardeginum
var bara kúrt og slappað af, síðan fórum við út að borða ..
síðan til óla hrafns og þar var fólkið sem var með ágústi í
englandi ..
síðan sótti guðni mig og ágúst og við kíktum rétt inn til tinnu,
þar voru bara læti og ekkert fjör .. þannig að ég fór til gústa og
síðan í annað partý haha steikta fólk þar..
hittum öldutúnsstrákana og fórum í göngutúr.. og bara heim síðan=)
..
i dag fór ágúst til florida, skemmtu þér vel ;* ..
og ég og rakel ætlum held ég í bíó í kvöld ! síðan
tekur bara lærdómurinn öll völd alla daga í páskafríinu..
en ég nefndist ekkert á að hann tæki völdin á kvöldin, óneii
.. þá verður sko haft gaman.
en já ætlaði bara að hafa þetta stutt að þessu sinni , svo að við
sjáumst ;*
»
07.04.2006 15:05:09 / mogli
Well well.. þá er netið aftur komið í lag, og já það var
ástæðan fyrir engu bloggi hérna í langann tima:/ sorry ! en
já.. ekkert að frétta svona sérstakt, árshátíðin var í
síðustu viku og mér fannst hún heppnast bara rosalega vel frá
byrjun til enda .. kosningadótið var svona;
Stuðbolti = Ágúst
Egó = Viktoría, og ekki sátt
Bjartasta vonin = Sigurður & Sara
Gelgja = Valey ;*
Parið = Katla og Ágúst ..
Drottning = Ég ..
Kóngur = Gústi
Prinsessa = Lína
Prins = Aron Helgason
Hirðmey = Sunna
Riddari = Siggi held eg
til hamingjuu ;*
sidan i gaer for eg a arshatidina i oldutunsskola og eg skemmti mer
bara mjög vel ! 
heyrdu stafirnir eru komnir i eitthvad rugl svo að 'eg nenni ekki
ad blogga en 'eg er að setja inn fullt af myndum!!
;*
»
12.03.2006 22:24:35 / mogli
»
09.03.2006 18:38:01 / mogli
»
06.03.2006 00:01:25 / katla-
sælt veri fólkið..
helgin mín er búin að vera bæði góð og vond, segjum 80% góð og hin
prósentin vond.
á föstudaginn fór ég bara í skólann eins og alla aðra dagana og
síðan um kvöldið fór ég á hið
margumtalaðasamfésballsemvaralveghreintmagnað !
á laugardaginn fór ég á samfés
söngvakeppninamargumtöluðuoghúnvaralveghreintfrábær.. ágúst og hans
félagar stóðu sig alveg hreint frábærlega , ójá jeij.
eeen ég bara nenni ekki að blogga þannig BÆ !
lag dagsins er ; azwethinkweiz með Incubus 
brandon, of sætur 
»
27.02.2006 22:48:41 / mogli
»
19.02.2006 18:17:15 / mogli

ágúst fannar;*
»
12.02.2006 15:11:27 / mogli
Halló
halló ..
helgin ágæt, á föstud. fór ég með ágústi í eitthvað matarboð hjá
ömmu hans sem var bara fínt :]
Í gær var ég vakin svoldið snemma og fór með ömmu og mömmu í
kringluna að finna skó og eitthvað fyrir hana, síðan sótti hin amma
mín mig þangað og við kíktum saman á laugarveginn og síðan niðrí
Heklu umboðið að prófa bíl fyrir ömmu. Ég fór síðan með pabba og
ágústi á rúntinn og á pizza pronto, mmmm.
Síðan þegar við komum heim var mamma komin í árshátíðarfötin sín
ekkert smá mikil gella;* hehe.. og pabbi skutlaði henni á
Nordica. Sem þýddi að ég var ein heima um kvöldið og fékk góða
gesti heim til mín.
Ófokk sko, ég á að skila útdrátt eða ritgerð eða eitthvað um
grafarþögn eftir nokkra daga og ég var að byrja að lesa þessa bók
rétt áðan! 295 bls, ég sé það ekki gerast.. en ég ætla að reyna og
ætla að halda áfram nuna, bæbæ;*
»
Síður: 1 2 3
|
|